Fuglabjargið

Borgarleikhúsið
fuglabjargid.jpg

FRESTAÐ VEGNA SAMFÉLAGSAÐSTÆÐNA


Fuglabjargið er áferðarfagurt tónleikhúsverk fyrir börn þar sem hljóðfæraleikarar og söngvarar verksins bregða sér í allra fugla líki. Í verkinu fylgjumst við með einu ári í eyjunni Skrúði þar sem árstíðir koma og fara, hver á eftir annarri, og svo hring eftir hring eftir hring.

Fuglabjargið er nýtt, íslenskt barnaverk en textinn er eftir Birni Jón Sigurðsson, en hann hlaut Grímutilnefningu sem leikrit ársins 2020 ásamt leikhópnum CGFC fyrir verkið Kartöflur. Tónlist verksins er frumsamin af Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Ragnheiði Erlu Björnsdóttur, en Ingibjörg var nýlega kosin bjartasta von íslensks tónlistarlífs í samtíma- og klassískri tónlist. Leikstjórn er í höndum Hallveigar Kristínar Eiríksdóttur.

Verkefnið er styrkt af Sviðslistaráði, Starfslaunasjóði listamanna, Átaksverkefni atvinnuleikhópa, Barnamenningarsjóði, Tónlistarsjóði, Nordic Culture Point og Óperudögum.

Miðasala er hér

Þátttakendur

hljóðfæraleikari
fagottleikari
saxófónleikari
slagverksleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar