Björg Brjánsdóttir

Hljóðfæraleikari

Björg Brjánsdóttir

Björg Brjánsdóttir útskrifaðist af einleikarabraut frá Tónlistarháskóla Noregs vorið 2017 og hefur auk þess stundað nám í þverflautuleik við Tónlistarháskólann í Hannover, Tónlistarháskólann í München og Konunglega danska Tónlistarháskólann. Björg er stofnandi kammersveitarinnar Elju sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin misseri. Björg er einnig fastur flautuleikari tónlistarhópsins Caput og hefur sinnt ýmsum hljómsveitarverkefnum, þ.á.m. með Fílharmóníuhljómsveitinni í Bergen, hljómsveit Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún er meðlimur flautuseptettsins Viibra sem hefur unnið með Björk Guðmundsdóttur frá árinu 2016 og hefur störf sem stjórnandi skólahljómsveitar Austurbæjar í ágúst 2020. Björg spilar á þverflautu, piccolo- og bassaflautu í barnaóperunni Fuglabjarginu auk þess að leika hlutverk Æðarfugls og Hafössu. 


Styrktar- og samstarfsaðilar