Ástardrykkurinn

Þjóðleikhúskjallarinn · fim 14. okt kl. 21:00
Þjóðleikhúskjallarinn · fös 15. okt kl. 21:00
Þjóðleikhúskjallarinn · fim 21. okt kl. 21:00
Þjóðleikhúskjallarinn · sun 24. okt kl. 18:00
Þjóðleikhúskjallarinn · fim 28. okt kl. 20:00
Þjóðleikhúskjallarinn · sun 14. nóv kl. 14:00
astardrykkur.png

Sviðslistahópurinn Óður sýnir Ástardrykkinn eftir Donizetti í Þjóðleikhúsinu!

Nemorino trúir ekki því sem hann les í bókum. Hann trúir hinsvegar því sem honum er sagt að standi í bókum. Hann kann nefnilega ekki að lesa.


Adina er vön að fá athygli frá karlmönnum. Hvað gerir hún þegar einhver hættir að sýna henni athygli?

Belcore vantar konu. Belcore vantar alltaf konu. Það væri fullkomin fjöður í hattinn fyrir svona flottan offisér.

Dulcamara er búinn að flytja sömu söluræðuna mörghundruð sinnum. Hann veit alveg að „töfralyfin“ hans virka ekki. En hvað ef þau gera það?

Sviðslistahópurinn Óður neitar að geyma óperur í glerkössum. Þau vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim, pota í óskrifaðar reglur og skemmta sér og öðrum. Þau trúa á nálægð við áhorfendur og einlæga túlkun á tungumáli sem áhorfendur skilja.

Nemorino: Þórhallur Auður Helgason

Adina: Sólveig Sigurðardóttir

Dulcamara: Ragnar Pétur Jóhannsson

Belcore: Jón Svavar Jósefsson

Píanóleikari: Sigurður Helgi Oddsson

Leikstjóri: Tómas Helgi Baldursson

Miðasala fer fram á tix




Styrktar- og samstarfsaðilar