Margrét Kristjánsdóttir

fiðluleikari

magga kristjáns

Margrét Kristjánsdóttir hóf fiðlunám sex ára gömul í Barnamúsíkskólanum í Reykjavík hjá Gígju Jóhannsdóttur. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Að því loknu hélt hún til framhaldsnáms í New York við Mannes College of Music, þaðan sem hún lauk B.M. prófi og Mastersgráðu. Aðalkennari hennar þar var Shirley Givens.

Margrét hefur verið fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1993. Hún hefur leikið með Kammersveit Reykjavíkur og í Hljómsveit Íslensku óperunnar og hinum ýmsu tónlistarhópum.

Margrét kenndi við Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarkóla Kópavogs um árabil. Árið 2012 hóf hún störf við Landakotsskóla og byggði þar upp fiðlukennslu í hópum innan frístundar. Í tengslum við þá kennslu þýddi hún og staðfærði kennsluefni fyrir unga fiðlunemendur Ævintýri í Fiðlulandi.

Styrktar- og samstarfsaðilar