Jóna G. Kolbrúnardóttir

Sópran

Jóna G. Kolbrúnardóttir

Jóna G. Kolbrúnardóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún var ung að árum þegar hún hóf að syngja og hefur sungið í ýmsum kórum bæði sem meðlimur og einsöngvari. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2014 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Haustið 2014 hélt hún í framhaldsnám til Vínarborgar. Þar lauk hún sumarið 2018 Bakkalárgráðu við Tónlistarháskólann undir leiðsögn Univ. Prof. Gabriele Lechner. 

Jóna hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum m.a. hjá Anne Sofie von Otter, Christine Schäfer, Stephan Matthias Lademann og Regine Werner. Jóna hefur hlotið ýmsa styrki fyrir framúrskarandi árangur í söng meðal annars úr Tónlistarsjóði Rótarýs á Íslandi og einnig í Vínarborg. Hún útskrifaðist s.l. júní með meistaragráðu frá Óperu Akademíunni við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Helene Gjerris og Susanna Eken.

Jóna hefur verið sýnileg í tónlistarlífinu hérlendis síðustu ár. Hún hefur komið fram sem einsöngvari á þónokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Síðast á Vínartónleikum sveitarinnar 2020 og á Klassíkin okkar 2021 sem sýndir voru í beinu streymi á RÚV. Jóna fór með frumraun sína hjá Íslensku Óperunni sem Gréta í óperunni “Hans og Gréta” árið 2018. En einnig hefur hún komið fram á Kúnstpásu tónleikum á vegum Íslensku Óperunnar og mun hún koma fram á ný í þeirri tónleikaröð í nóvember 2021. Hún fór með sitt fyrsta hlutverk við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn haustið 2020, þar sem hún söng Papagenu í Töfraflautunni eftir Mozart.

Jóna hefur mikinn áhuga á ljóðasöng og þeim töfrum og innblæstri sem ljóðin færa henni bæði í undirbúningsvinnunni og í tónleikasalnum. Hún hefur haldið fjölda ljóðatónleika er alltaf að vinna að nýju efni í þeirri grein.

Styrktar- og samstarfsaðilar