Hulda Gissurardóttir Flóvenz
leikkona
![Hulda](/media/images/43279D48-1029-4769-8F27-57F5B.2e16d0ba.fill-400x600-c100.jpg)
Hulda Gissurardóttir Flóvenz er grunnskólanemi. Hún leggur stund á píanónám hjá Nínu Margréti Grímsdóttur við Tónskóla Sigursveins og ballett við Listdansskóla Íslands. Hún hefur leikið hlutverk Lenù og Immu í Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu, í auglýsingum, skólaleikritum og nú síðast hlutverk Mærþallar ungrar í óperu Þórunnar Guðmundsdóttur, Mærþöll sem sýnd var á síðasta ári.