Hamrahlíðarkórinn

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð var stofnaður 1967 af Þorgerði Ingólfsdóttur sem stjórnaði kórnum í hálfa öld. Kórinn hefur frá stofnun frumflutt fjölmörg kórverk og er enn í dag meðal leiðandi kóra í frumflutningi á íslenskum kórverkum. Meðlimir kórsins eru nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð á aldrinum 16 - 19 ára. Kórinn hefur margoft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, nú síðast í desember 2018 á hátíðartónleikum í tilefni af 100 ára fullveldi Íslands. Á hverri vorönn ferðast kórinn um landið og kynnir þar innlend sem erlend kórverk. Kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson.

Styrktar- og samstarfsaðilar