lau, 28. maí 2016
Opnun Óperudaga á fjölskyldustund í Salnum
30"
:class="scrolled ? 'opacity-0 pointer-events-none' : 'opacity-100'">
Meira
Óperudagar í Kópavogi hefjast 28. maí með frumflutningi FótboltaÓperunnar í Salnum á fjölskyldustund Menningarhúsa Kópavogs. FótboltaÓperan er eftir Helga R. Ingvarsson en sex einsöngvarar, fimmtán börn úr Skólakór Kársness ásamt trommuleikara flytja óperuna sem er um tíu mínútur að lengd. Að því loknu verður börnum boðið að skoða leynda kima Salarins og kynnast undirbúningi hjá söngvurum áður en þeir stíga á svið. Á túninu verða fótboltamörk og ýmsar uppákomur í boði sem tengjast fótboltaíþróttinni og komandi EM keppni.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Þátttakendur
-
Helgi Rafn IngvarssonTónskáld og tónlistarstjóri
-
Jón Svavar JósefssonBarítón
-
Þórgunnur Anna ÖrnólfsdóttirSöngkona
-
Elfur Sunna BaldursdóttirMezzósópran
-
Alexander Jarl ÞorsteinssonTenór
-
Hugi JónssonBarítón
-
Þórhallur Auður HelgasonTenór
-
Einar Dagur JónssonTenór
-
Svanhildur Lóa BergsveinsdóttirSlagverksleikari
-
Meðlimir úr Skólakór KársnessBarnakór