Viðburðir

Elísabet og Sólborg

Elísabet og Sólborg

Salnum Kópavogi · 26. maí
Fyrstu tónleikar hátíðarinnar verða í Salnum, Kópavogi þann 26. maí. Elísabet Einarsdóttir og Sólborg Valdimarsdóttir stíga á stokk og gefa okkur sýnishorn af því sem koma skal á hátíðinni sjálfri.Sólborg og Elísabet ætla að flytja magnað óperuprógram með ítölskum, þýskum og frönskum aríum. Þær einkennast af miklum blæbrigðum og söngkonan og píanóleikarinn fá að njóta sín í öllum fjölbreytileikanum.Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791)                                                                                                              Al destin che la minaccia úr Mitridate  Farnance langar að giftast Aspasiu en Aspasia óttast hann. Aspasia biður þá Sifare, bróður og óvin Farnace að vernda hana.G. Donizetti (1897-1848)                                                                                                                                    Regnava nel silenzio úr Lucia di Lammermoor.Í þessari frægu aríu segir Lucia Alisu þjónustustúlku sinni frá að hún hafi séð draug á þeim stað sem þær eru staddar. Hún telur að draugurinn sé stelpa sem drepin var af ættingja sínum frá Ravenswood. Ravenswood ættin og ættin hennar - Lammermoor hafa aldrei átt skap saman og hafa alltaf staðið í stöðugu stríði. Lucia segir þjónustustúlku sinni að ást hennar á Edgardo er sterkari en þessi váboði sem draugurinn er.J. Strauss (1825-1899)                                                                                                                                                                        Mein herr Marquis úr óperettunni Die Fledermaus Eisenstein er kynntur fyrir Adele, en hann er ekki viss um hver hún er því hún líkist svo þjónustustúlkunni hans. Hún hlær upphátt að þessu öllu saman. Þessi Marquis er fyndinn!A. Thomas (1811-1886)Oui, pour ce soir.. Je suis Titania la blonde úr MignonPhiline fer í annað hlutverk og leikur ”Titaniu, hina ljóshærðu”. Bara í kvöld þá er hún töfragyðja sem er umvafin fuglum, blómum, fiðrildum og birtu.G. Donizetti (1897-1848)Par le rang et par l’opulence úr óperunni La fille du regimentMarie er skilin eftir ein og yfirgefin. Elskhugi hennar er farinn í herinn. Þegar hún er næstum því búin að sætta sig við að vera ein, heyrir hún hertónlistina og verður svo glöð þegar hann kemur.

Dagskrá Óperudaga 2016

FORDAGSKRÁ:Mánudagur 23. maí  - Heimsóknir í grunnskóla í KópavogiÞriðjudagur 24. maí - Heimsóknir í grunnskóla í KópavogiFimmtudagur 26. maí - Heimsóknir á hjúkrunarheimili í KópavogiFöstudagur 27. maí - Heimsóknir á hjúkrunarheimili í KópavogiFimmtudagur 26. maí  - Brot af því sem koma skal - Hádegistónleikar í Leikfélagi Kópavogs. Elísabet Einarsdóttir, sópran og Sólborg Valdimarsdóttir, píanóleikari, koma fram.DAGSKRÁ ÓPERUDAGA Í KÓPAVOGI Miðvikudagur 1. júní12:15 - 13:00 - Hádegistónleikar í Salnum, Kópavogi14:00 - 15:00 - Spjall og spurningar í Leikfélagi Kópavogs, Funalind 220:00 - 21:00 - Stofutónleikar í heimahúsi20:00 - 21:00 - SELSHAMURINN - FRUMSÝNING í Leikfélagi KópavogsFimmtudagur 2. júní09:30 - 11:30 - Masterklass með Kristni Sigmundssyni í Salnum Kópavogi12:15 - 12:50 - Hádegistónleikar í Leikfélagi Kópavogs 13:00 - 15:00 - Masterklass með Kristni Sigmundssyni í Salnum í KópavogiÍ eftirmiðdaginn fer FótboltaÓperan um bæinn20:00 - 21:00- SELSHAMURINN í Leikfélagi Kópavogs, 2.sýningFöstudagur, 3. júní 09:30 - 11:30 - Masterklass með Kristni Sigmundssyni12:15-12:50 - Hádegistónleikar13:00 - 15:00- Masterklass með Kristni Sigmundssyni í Salnum16:00-17:15 - Krakkaganga18:00 - 19:45 - Óperuganga20:00-21:00 - Poppea Remixed í Leikfélagi Kópavogs - frumsýning20:30 -23:00 - Kabarettkvöld og opið hús í Garðskálanum, Gerðarsafni.Laugardagur, 4. júní 12:15 - 12:50 - Hádegistónleikar13:30-14:45 - Krakkaganga15:30-17:15 - Óperuganga20:00 -21:00  - Stofutónleikar í heimahúsi20:00 - 21:00 - Poppea Remixed í Leikfélagi KópavogsSunnudagur 5. júní12:15 - 12:50 - Hádegistónleikar13:30-14:45 - Krakkaganga15:30-17:15 - Óperuganga20:00 - Lokatónleikar í Salnum í Kópavogi Ókeypis verður inn á alla viðburði nema hádegistónleikana en við mælum eindregið með að áhugasamir tryggi sér miða á viðburði með því að senda tölvupóst á operudagar@operudagar.is ásamt nafni, síma og fjölda miða sem óskað er eftir. Gestum er velkomið að mæta á staðinn án þess að hafa pantað miða en þá er ekki hægt að tryggja að enn séu til lausir miðar.