Masterklass með Kristni Sigmundssyni

Salnum · fim 2. jún kl. 9:30
Salnum · fös 3. jún kl. 9:30
Kristinn Sigmundsson

Kristin Sigmundsson þarf vart að kynna enda einn ástsælasti óperusöngvari þjóðarinnar. Á Óperudögum í Kópavogi mun hann halda tveggja daga námskeið fyrir unga söngvara í Salnum og verður það öllum opið. Þátttakendur á Óperudögum í Kópavogi undirbúa verk til að flytja og munu njóta leiðsagnar hans fimmtudaginn 2. júní og föstudaginn 3. júní.

Leiðsögn Kristins hefst kl. 9.30 og stendur til 11.30 en síðan er tekið hlé vegna hádegistónleika á vegum hátíðarinnar. Frá 13-15 heldur Kristinn svo áfram að leiðbeina söngvurum.

Styrktar- og samstarfsaðilar