FIDELIO - ATLAGA AÐ ÓPERU

Norðurljós, Hörpu · fim 26. ágú kl. 20:00
Norðurljós, Hörpu · fös 27. ágú kl. 20:00
NARVA OPERA DAYS, Eistlandi · lau 11. sep kl. 19:00
Norðurljós, Hörpu · fös 19. nóv kl. 20:00
Norðurljós, Hörpu ·
FIDELIO

Miðasala á aukasýningu 19. nóvember hefst von bráðar!

Afleiðingar frelsissviptingar, hlutverk kynjanna, ást og grimmd eru viðfangsefnin í uppfærslu Óperudaga á Fidelio, einu óperunni sem Ludwig van Beethoven samdi. Aðstandendur Óperudaga, klassískir atvinnusöngvarar úr mismunandi áttum taka hér höndum saman og gera atlögu að þessu stórvirki tónbókmenntanna með ástríðu, reynslu og sönggleði að vopni. Verkið er hér sýnt í styttri útgáfu og í útsetningu Daniel Schlosbergs fyrir 7 manna hljómsveit.

Upphaflega var ætlunin að sýna verkið á 250 ára afmæli tónskáldsins en núna er Beethoven orðinn 251 árs og það kemur varla að sök. Óperan hefur aðeins einu sinni verið flutt í tónleikaformi á Íslandi, árið 1981. 

Leonore leitar eiginmanns síns Florestan sem ómennið Pizarro heldur föngum. Hún dulbýr sig sem karlmaður, tekur upp nafnið Fidelio og kemur sér í mjúkinn hjá undirmanni Pizarro, Rocco. Marzelline dóttir Rocco verður ástfanginn af Fidelio á meðan að vonbiðill hennar Jacquino gerir allt til að ná athygli hennar. Á meðan bíður Florestan örlaga sinna.

Þátttakendur

leikstjóri og söngvari
listrænn stjórnandi og söngkona
píanóleikari
tónskáld og stjórnandi
slagverksleikari
hornleikari
hönnuður og framleiðandi
hornleikari
sellóleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar