Bárur

Norræna húsið · mið 20. okt kl. 16:00
Norræna húsið · fim 21. okt
Bárur

Leikskólabörnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðið á sýningar í Norræna húsinu 20. og 21. október. Ein opin sýning verður í boði klukkan 16:00 miðvikudaginn 20. október. Aðgangur er ókeypis en panta verður miða með því að senda póst á operudagar@operudagar.is

Niður sjávar og vatns er aðalþema þessa verks sem er samið fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en norræn goðafræði svífur einnig yfir vötnum. Sagan er sögð af tónskáldinu, Svöfu Þórhallsdóttur, sem leiðir börnin í ævintýraheim og notar hún söguna til að skapa aðstæður þar sem börnin fá að taka þátt. Tónlistin skapar draumkennt andrúmsloft og í samspili við börnin myndast rými, þar sem þau ná að fóta sig og upplifa ævintýrið á eigin skinni.

Sýningin er styrkt af Norræna menningarsjóðnum og Barnamenningarsjóði

Þátttakendur

söngkona og leiðbeinandi krílasöngs
harmonikkuleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar