Áslákur Ingvarsson

barítón

AslakurHS

Barítónsöngvarinn Áslákur Ingvarsson útskrifaðist frá Konunglegu konservatóríunni í Antwerpen árið 2022 og hefur síðan verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. Meðal hlutverka hans eru Fígaró í Rakaranum í Sevilla, Belcore í Ástardrykknum, Dr. Malatesta í Don Pasquale og Marcello í La Bohème.

Áslákur hefur komið fram með fjölmörgum sjálfstæðum óperuhópum, þar á meðal Óði, Kammeróperunni og Sambandinu Óperukompaní, og hlaut tilnefningu til Grímunnar sem söngvari ársins 2024 fyrir túlkun sína á Póst-Jóni. Hann hefur einnig tekið þátt í frumflutningi nýrra íslenskra tónverka og býr yfir fjölbreyttum bakgrunni í sviðslistum, hljóðhönnun og raftónsmíðum.