Viðburður Óperudagar 2026

áttir

Fríkirkjan í Reykjavík · lau 31. okt kl. 21:00
áttir

áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttir er tónverk fyrir rödd, rafhljóð og hljóðskúlptúra, samið sérstaklega fyrir Heiðu Árnadóttir. Verkið var upphaflega flutt á vorjafndægri árið 2026, þegar dagur og nótt eru nánast jafn löng. Sá tími árs markar jafnvægi og umbreytingu sem endurspeglast í tónmáli og efnistökum verksins.

Verkið er byggt á grafískri nótnaskrift þar sem ljósmyndir af sömu plöntunni á mismunandi tímum árs eru notaður sem grunnur fyrir grafísku nóturnar. Upphafskafli verksins er byggður á ljósmyndum af plöntunni sem teknar voru í febrúar (2023), sem eins konar inngangur inn í vorjafndægrið. Í öðrum kafla verksins eru notaðar ljósmyndir sem teknar voru í kringum vorjafndægur (2023). Lokakafli verksins er síðan byggður á ljósmyndum sem teknar voru að sumri til (2023).

Innblástur verksins kemur frá himingeiminum og veðráttu, en einnig frá hugmyndum um sýnileika og ósýnileika, hvernig hið efnislega og hið óáþreifanlega birtist í samspili. Lilja hannaði hljóðskúlptúra úr mismunand efnivið sem staðsettir verða á mismunandi stöðum í Fríkirkjunni. Þessir skúlptúrar verða virkjaðir af Heiðu á ákveðnum stöðum í verkinu og skapa þannig lifandi samtal milli raddar, rýmis og efnis.

Þátttakendur