Eftir nóttina

Fríkirkjan í Reykjavík · lau 20. okt kl. 20:00
Eftir nóttina

Í samstarfi við Óperudaga í Reykjavík fær Barokkbandið Brák til liðs við sig söngkonurnar Guju Sandholt og Hrafnhildi Árnadóttur Hafstað til að færa ykkur sannkallaða Händel-veislu. Þær Guja og Hrafnhildur munu ásamt Brák flytja vel valdar aríur eftir Georg Friedrich Händel ásamt hljóðfæratónlist efitir Händel og samtímamenn hans þá Vivaldi, Sammartini og Galuppi. Tónleikagestum verður boðið í ferðalag þar sem ástir og örlög taka völdin og tónarnir kitla taugaendana líkt og Brák einni er lagið.

Barokkbandið Brák hefur stimplað sig inn í íslenskt tónlistarlíf síðustu misseri með líflegum upprunaflutningi sínum og fjölbreyttu verkefnavali en bandið er skipað hópi hljóðfæraleikara sem hefur sérhæft sig að hluta til í upprunaspilamennsku í námi erlendis og vill nýta þessa þekkingu sína til tónleikahalds og verkefna á Íslandi. Elfa Rún Kristinsdóttir er listrænn stjórnandi og leiðari bandsins en hún er margverðlaunaður fiðluleikari og hefur komið fram á tónleikasviðum um heim allan ýmist sem einleikari, konsertmeistari eða kammermúsíkspilari. Barokkbandið Brák hefur verið starfrækt frá árinu 2014 en bandið var stofnað af fiðluleikurunum Elfu Rún Kristinsdóttur, Laufeyju Jensdóttur og Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur. Brák hefur fengið afar góðar viðtökur á tónleikum sínum hvarvetna og gagnrýnandi morgunblaðsins lýsti upplifun sinni nýlega á þessa leið: "Hvert einasta atriði á tónleikunum var magnað.... Það mætti vera oftar eitthvað í þessum dúr á barokktónleikum á Íslandi."

Þátttakendur

listrænn stjórnandi og söngkona

Styrktar- og samstarfsaðilar