Hljómeyki
kammerkór

Sönghópurinn Hljómeyki hélt sína fyrstu tónleika í Norræna húsinu 23. mars árið 1974. Hljómeyki skipaði sér þegar í fremstu röð íslenskra kóra og hefur á þeim áratugum sem liðnir eru flutt ógrynni verka af margvíslegu tagi — allt frá fjölradda kórmúsík endurreisnarinnar til íslenskrar rokktónlistar samtímans. Kórinn var í samvinnu við Sumartónleika í Skálholti um árabil og frumflutti þar tugi verka eftir mörg helstu tónskáld landsins. Kórinn tekur iðulega þátt í öðrum tónlistarhátíðum, svo sem Myrkum músíkdögum, Norrænum músíkdögum og Reykholtshátíð. Hljómeyki hlaut silfurverðlaun í Grand Prix kórakeppninni í Tours í Frakklandi árið 2010.
Hljómeyki hefur nokkrum sinnum tekið þátt í óperuflutningi og má þar nefna Dídó og Eneas eftir Purcell, Orfeus og Evridísi eftir Gluck, Orfeo eftir Monteverdi, Carmen eftir Bizet og Porgy og Bess eftir Gershwin. Síðastnefndu verkin söng kórinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands en Hljómeyki hefur komið reglulega fram með hljómsveitinni á undanförnum árum, síðast með verk Hildar Guðnadóttur, Fact of the Matter í október 2024. Þá hefur Hljómeyki komið fram með hljómsveitunum Todmobile, Sólstöfum, Skálmöld og Dúndurfréttum.
Hljómeyki hefur gefið út sex geisladiska með verkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Báru Grímsdóttur, Jón Nordal og Sigurð Sævarsson. Árið 2019 gaf kórinn út tvo diska á Spotify með alíslensku efni. Hljómeyki hefur einnig verið frumkvöðull í flutningi stærri rússneskra verka, m.a. Náttsöngva Rakhmaninovs, Kórkonsert Schnittkes, Púskinsveig eftir Sviridov og nú síðast stórvirkið Path of Miracles eftir Joby Talbot.
Kórinn hélt upp á fimmtíu ára afmæli sitt með glæsilegum tónleikum í Hallgrímskirkju í apríl 2024. Á efnisskránni voru verk sem samin hafa verið fyrir kórinn og/eða kórinn frumflutt.
Stjórnandi Hljómeykis er Stefan Sand.