Fimm ár

Kaldalón/Hof/Tjarnarbíó · lau 23. jan kl. 18:00
Kaldalón/Hof/Tjarnarbíó · lau 23. jan kl. 21:00
Kaldalón/Hof/Tjarnarbíó · sun 24. jan kl. 19:00
Kaldalón/Hof/Tjarnarbíó · lau 30. jan kl. 18:00
Kaldalón/Hof/Tjarnarbíó · lau 30. jan kl. 21:00
Hof · fim 2. sep kl. 20:00
Tjarnarbíó · lau 11. sep kl. 20:00
Fimm ár

Fimm ár er falleg ástarsaga sem segir frá fimm ára sambandi ungrar konu og manns, hann er rithöfundur og hún er leikkona. Honum vegnar vel og verður fljótt vinsæll rithöfundur en þrátt fyrir endalausar prufur og puð kemst leikferill hennar aldrei á flug. Hún neyðist til að verja löngum sumrum í heimabæ sínum þar sem hún leikur í litlu bæjarleikhúsi og leigir herbergi með “ fyrrverandi vændiskonu og snáknum hennar, Wayne“. Það sem er sérstakt við frásögnina er að söguþráður Cathy gerist í öfugri tímaröð en Jamie segir frá sambandinu á sama tíma en í réttri röð. Persónurnar mætast aðeins einu sinni í miðju verksins.

Söngleikurinn Fimm ár er eftir Jason Robert Brown og er vel þekktur á West End og Broadway og af söngleikja aðdáendum út um allan heim. Þetta er frumflutningur á söngleiknum á Íslandi.

Fimm ár er einstök leikhúsupplifun sem leikhús og tónlistaaðdáendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Sýningin er 75 mínútur.


Upprunalega framleitt fyrir The New York Stage af Arielle Tepper og Marty Bell. Upprunalega framleitt af Northlight Theatre Chicago, II. Flutt með leyfi Music Theatre International Europe.

Verkefnið er styrkt af:
ÝLI – tónlistarsjóði fyrir ungt fólk
SUT- Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns


Þátttakendur

Rúnar Kristinn
söngvari
sellóleikari
gítarleikari
píanóleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar