Hjartasöngur

Norræna húsið · lau 21. okt kl. 10:00
Norræna húsið · lau 21. okt kl. 11:30
Norræna húsið · sun 22. okt kl. 10:00
Norræna húsið · sun 22. okt kl. 11:30
Duus Reykjanesbæ · þri 24. okt kl. 10:00
Duus Reykjanesbæ · þri 24. okt kl. 11:30
Hjertelyd

Hjertelyd eða Hjartasöngur er ungbarnaópera fyrir börn á aldrinum 0-2,5 árs og forráðamenn þeirra.

Í sýningunni er litlum og stórum áhorfendum boðið í ferðalag inn í blíðan og rólegan skynjunarheim. Börnin geta kannað umhverfi sitt á öruggan hátt meðan tónlistin hljómar í kring og stórir og dúnmjúkir koddar og önnur notaleg og ullarkennd efni umkringja rýmið.

Það er pláss fyrir alla í Hjartasöng - í sýningunni opnast börnunum töfraheimur með samspili lita og hljóða. Þá verða hreyfingar og hljóð barnanna sjálfra jafnframt hluti af flutningnum - og þau upplifa ef til vill óperutónlist í fyrsta sinn! Áhorfendur sitja í hring í kringum lítið svið og börnin geta auðveldlega skriðið um og heilsað upp á tónlistarfólkið og rýnt nánar í leikmuni sýningarinnar.

Engrar tungumálakunnáttu er krafist þar sem lögð er áhersla á leik að hljóðum og orðum á ýmsum tungumálum. Börn sem ekki eru farin að tjá sig á tungumáli, fá þá tækifæri til að upplifa sýninguna með öllum líkamanum og skynfærum. 

Markmið verksins er að gera gestum auðvelt og aðgengilegt að njóta tónlistar og taka þátt í listsköpun.

Tónlistin í verkinu er eftir Sam Glazer og handritshöfundur er Zoë Palmer. Tanja Bovin hannaði leikmynd og Marlene Smith gerði kóreógrafíu.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Norræna húsið og styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og Barnamenningarsjóði.

Sýningarnar í Reykjanesbæ er styrktar af Reykjanesbæ. Aðgangur er ókeypis á þær sýningar en nauðsynlegt að skrá sig á menning@reykjanesbaer.is

Þátttakendur

saxófónleikari
söngvari
sellóleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar