Um Óperudaga
Almennt um hátíðina
Óperudagar er hátíð og vettvangur klassískra söngvara og þeirra samstarfsfólks sem vilja í sameiningu og samstarfi efla og styrkja óperu-, söng- og tónlistarleikhússenuna á Íslandi.
Markmiðið með hátíðinni er að standa fyrir vönduðum og fjölbreyttum viðburðum á venjulegum og óvenjulegum stöðum; stuðla að nýsköpun og tilraunum, efla starfsgrundvöll söngvara og þeirra samstarfsfólks; kalla eftir innlendu og alþjóðlegu samstarfi og taka vel á móti nýjum og gömlum áhorfendahópum. Lögð er áhersla á samstarf, samvinnu og samfélagslegan fókus. Óperudagar er ekki aðeins óperuhátíð heldur hátíð allra greina klassískrar sönglistar enda syngja klassískir söngvarar jú alls konar tónlist.
Teymi Óperudaga 2026
Guja Sandholt - stjórnandi
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir - verkefnastjóri og listrænn ráðgjafi
Dúna August - grafísk hönnun
Árni Ólafur Jónsson - umsjón með vefsíðu/altmuligmand
Á undanförnum árum höfum við einnig starfað með frábæru fólki í hátíðarteymi sem hafa öll sett mark sitt á hátíðina:
Jón Ingi Stefánsson - vefsíðuhönnuður
Pétur Oddbergur Heimisson - verkefna- og kynningastjóri
Þórunn Vala Valdimarsdóttir - verkefnastjóri
Ása Fanney Gestsdóttir - meðstjórnandi 2018