ÓPERUDAGAR
Þórunn Ósk Marínósdóttir

Listafólk Óperudaga

Þórunn Ósk Marínósdóttir

Víóluleikari

Þórunn Ósk er leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún lærði við konunglega tónlistarháskólann í Brüssel hjá Ervin Schiffer. Þórunn hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Prima la Musica og hljómsveit Sumida Triphony Hall í Tokyo.

Þórunn kennir víóluleik og kammertónlist við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands. Hún er mjög virkur kammermúsikspilari og kemur fram á fjölmörgum kammertónleikum á hverju ári. Hún er jafnframt stofnfélagi í Strokkvartettinum Sigga sem hefur frumflutt fjölda nýrra verka síðan 2012.

Myndasafn

Myndir

þórunnósk

þórunnósk