ÓPERUDAGAR
Þóra Kristín Gunnarsdóttir

Listafólk Óperudaga

Þóra Kristín Gunnarsdóttir

Píanóleikari

Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari fluttist til Íslands árið 2021 eftir tíu ár við nám og störf í Sviss. Síðan þá hefur hún spilað á mörgum helstu tónleikaröðum og hátíðum landsins, m.a. í tónleikaröðunum Tíbrá, tónleikaröð Kammermúsíkklúbbsins, Velkomin heim í Hörpu, Klassík í Salnum, á Sígildum sunnudögum og á tónlistarhátíðunum Reykholtshátíð, Seiglu og Klassík á eyrinni. Hún er meðlimur píanókvartettsins Neglu, sem var stofnaður árið 2023 og hefur vakið mikla athygli fyrir vandaðan flutning og spennandi efnisskrár. Hún hefur einnig brennandi áhuga á ljóðameðleik og hefur leikið á fjölda ljóðatónleika síðustu ár, oft með söngvurum Kammeróperunnar en einnig með Hönnu Dóru Sturludóttur, Maríu Sól Ingólfsdóttur, Hildigunni Einarsdóttur og fleirum. Í Sviss kom hún m.a. fram á tónlistarhátíðinni Chesa Planta Musiktage og á tónleikum á vegum Liedrezital Zürich. Árið 2018 frumflutti hún nýjan ljóðaflokk Valentin Villards ásamt Béa Droz mezzósópran á tónleikaferð um Sviss. Hún hefur verið meðleikari á masterklassnámskeiðum fyrir söngvara og strengjaleikara hérlendis og erlendis og starfar sem meðleikari við Menntaskóla í tónlist og Söngskólann í Reykjavík.

Þóra hóf tónlistarnám sitt á Akureyri hjá Dýrleifu Bjarnadóttur og lærði síðar hjá Peter Máté við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk meistaragráðu í píanókennslu og píanóleik með kammertónlist sem aukagrein frá tónlistarháskólanum í Luzern árið 2017. Helstu kennarar hennar þar voru Yvonne Lang og Edward Rushton. Árið 2020 lauk hún annarri meistaragráðu í kammertónlist og meðleik frá listaháskólanum í Zürich, þar sem aðalkennari hennar var píanóleikarinn Friedemann Rieger. Hún sótti þar einnig reglulega tíma í ljóðameðleik hjá m.a. Christoph Berner og kammertónlist hjá Eckart Heiligers og fleirum. Hún hefur sótt masterklassnámskeið hjá m.a. Thomas Hampson, Simon Lepper, Joseph Breinl og Ewa Kupiec.

Deila prófíl

Saga

Þáttaka á fyrri hátíðum