ÓPERUDAGAR
Richard Schwennicke

Listafólk Óperudaga

Richard Schwennicke

Hljómsveitarstjóri

Richard Schwennicke er hljómsveitarstjóri og píanóleikari með víðtæka reynslu frá leiðandi óperuhúsum í Evrópu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem repetitör, söngþjálfari og hljómsveitarstjóri við Vínaróperuna, eitt virtasta óperuhús heims.

Hann lauk einleikaraprófi í píanóleik og síðar B.A.-prófi í hljómsveitarstjórn með áherslu á óperu frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover. Hann starfaði sem aðstoðarkórstjóri og hljómsveitarstjóri í Kassel og Hannover, auk þess að gegna stöðu yfirmanns tónlistardeildar við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann bar ábyrgð á skipulagi tónlistardeildar og undirbúningi söngvara.

Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu.

Deila prófíl

Myndasafn

Myndir

richard

richard