ÓPERUDAGAR
Nuka Alice

Listafólk Óperudaga

Nuka Alice

Frumkvöðlastarf Nuka Alice Lund felst í að endurvekja trommudans og trommusöngs inúíta á Grænlandi. Hún varðveitir hefðbundna söngva og miðlar þeim í kennslu en jafnfram semur hún eigin trommusöngva. Hún lærði trommudans hjá Pauline Lumholt árið 2009 og samdi sína fyrstu trommusöngva sama ár.

Nuka Alice hefur síðan aukið við efnisskrá sína og býður nú upp á heila dagskrá þar sem hún fléttar frásögnum saman við eigin söngva og söngva sem hún hefur samið í samstarfi við aðra. Í dag starfar hún í fullu starfi við trommudans og vinnur að flutningi, sköpun og kennslu til að halda á lofti hefð grænlenskra inúíta í trommudansi og trommusöng. Hefðin var skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns árið 2021.

Nuka Alice hefur sýnt trommudans inúíta við ýmis tilefni. Árið 2017 kom hún fram á opnun haustþings grænlenska þingsins ásamt hinum virta austurgrænlenska trommudansara Anda Kuitsi. Voru þau fyrstu trommudansararnir til að gera það. Nuka Alice hefur einnig komið fram við opnun árlegrar tónlistarhátíðar Arctic Sounds frá því að hún var fyrst haldin árið 2014.

Nuka Alice hefur kennt trommudans inúíta við Knud Rasmussenip Højskolea-lýðháskólann og tónlistarskólann Serravik auk þess að vera gestakennari við þjóðleikhússkólann á Grænlandi.

Hlekkir og samfélagsmiðlar

Deila prófíl