ÓPERUDAGAR

Listafólk Óperudaga

Listahópurinn Húmat

Listahópurinn Húmat er fjölbreyttur og skapandi listahópur sem flytur persneska tónlist og samþættir hana við ólík tónlistarform og menningarheima. Hópurinn notar hefðbundin persnesk hljóðfæri á borð við daf (rammatrommu) ásamt klassískum hljóðfærum eins og gítar og píanói. Tónlistarheimur þeirra spannar allt frá hefðbundnum og klassískum tónum yfir í nútímalegri stíla eins og popp og popp-hiphop. Í gegnum tónlist, ljóð og samstarf við aðra listamenn leitast Húmat við að skapa brú á milli menningarheima og færa áheyrendum einstaka og innilega upplifun.

Deila prófíl