Herdís Anna Jónasdóttir

Sópran

Herdís Anna

Sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir hefur á ferli sínum öðlast víðtæka reynslu í óperu, ljóðasöng, kirkju- og samtímatónlist. Hún nam við Listaháskóla Íslands, Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín og óperustúdíó Óperunnar í Zürich og var fastráðin við Ríkisóperu Saarlands í Þýskalandi á árunum 2013–2018.

Herdís hefur komið fram með fjölda hljómsveita og á óperusviðum hérlendis og erlendis og sungið hlutverk á borð við Víólettu í La traviata, Musettu í La bohème og Adinu í Ástardrykknum. Árið 2024 söng hún öll þrjú hlutverkin í frumflutningi Óperunnar hundrað þúsund í Þjóðleikhúsinu.

Herdís hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars Grímuna árið 2019 og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022.