ÓPERUDAGAR
Urta
sun, 19. okt 2025
mán, 20. okt 2025

Urta

Urta - söguljóð er nýtt tónverk (2024-2025) eftir Ingibjörgu Azimu, samið við samnefnda ljóðabók Gerðar Kristnýjar sem út kom árið 2022. Tónverkið er samið fyrir sópran, píanó, horn, pákur og slagverk og verður frumflutt á Óperudögum í Hafnarhúsinu 19. og 20. október 2025 kl. 20:00 bæði kvöldin. Söguljóðið segir frá lífsbaráttu formóður ljóðskáldsins norður á Ströndum fyrir rúmri öld.