ÓPERUDAGAR
Söngpartý / Opinn hljóðnemi
Harpa – Norðurljós | sun, 27. okt 2024

Söngpartý / Opinn hljóðnemi

Opni hljóðneminn er orðinn að árlegum viðburði á Óperudögum og ekki að ástæðulausu - þá getur hver sem þorir látið ljós sitt skína, stokkið upp á svið og sungið uppáhaldsaríuna, -lagið eða samsöngsatriðið sitt. Matthildur Anna Gísladóttir situr við hljóðfærið og leikur með!

Takið með nótur og/eða spjaldtölvur! Þetta verður sannkallað söngpartý og barinn að sjálfsögðu opinn!

Félagar í Klassís, fagfélagi Klassískra söngvara fá ókeypis aðgang sem og söngnemendur í söngskólum og -deildum landsins!

Miðasala