ÓPERUDAGAR
Opinn hljóðnemi
fim, 3. nóv 2022

Opinn hljóðnemi

Söngvarar koma sér vel fyrir og taka lagið í afslappaðri stemningu á Stúdentakjallaranum. Sviðið er opið, barinn opinn og Sigurður Helgi píanisti er til taks fyrir þá sem vilja prufukeyra ljóð, lög, aríur og kabaretta. Aðrir píanistar og hljóðfæraleikarar eru líka velkomnir. Eitt til tvö lög á mann ef það er örtröð. Einnig er í boði að segja lygasögur, fara með rímur eða krassandi klámvísur úr óperubransanum.