News • 9. September 2026
Óperudagar safna fyrir píanói fyrir Tjarnarbíó
News •
Óperudagar safna fyrir píanói fyrir Tjarnarbíó
Náum við markmiðinu fyrir 1. október?
Náum við markmiðinu fyrir 1. október?
Tekst okkur að safna fyrir Tjarnarpíanói fyrir 1. október?
Tjarnarbíó er frábært leikhús og tónlistarleikhús en það vantar gott píanó. Garmurinn sem er þar núna er búinn að syngja sitt síðasta og segja upp störfum. Í tilefni af 10 ára afmæli Óperudaga, ætlum við að hrinda af stað söfnun til að hægt sé að kaupa nýtt eða notað hljóðfæri sem hentar húsinu. Margt smátt gerir eitt stórt!
Ef 500 manns styrkja um 1000 kall - eða 1000 manns um 500, ættum við að geta fundið vel nothæft hljóðfæri. Ef einhver lumar á góðu píanói sem er ekki í mikilli notkun og ekki mjög stórt í sniðum (verður að vera auðvelt að rúlla því um), hafið endilega samband!
Setjum okkur markmið, náum þessu fyrir 1. október!
Reikningsnúmer
133-26-11890
kt. 6005160860 (Pera óperukollektíf, félagasamtökin sem standa að baki Óperudögum)
Merkið færsluna sem PÍANÓ!
Ef fjárhæðin sem safnast verður hærri en kostnaður við hljóðfærið sjálft, píanóstól og flutningskostnað á hljóðfærinu, mun afgangurinn renna óskertur í píanóstillingar- og viðhaldsjóð Tjarnarpíanóisins.
Algjört gagnsæi mun ríkja um söfnunina og allar tölur birtar opinberlega á síðu Óperudaga að henni lokinni.
Staða söfnunar 9. september er: 15.000 krónur!
Aðrar nýlegar fréttir
Fyrirtækjavinir Óperudaga
Við viljum vingast við samfélagslega þenkjandi fyrirtæki
Viltu verða vinur Óperudaga?
Vinir Óperudaga njóta sérkjara hjá okkur og eru stuðningsnetið okkar
NOC and Ragnheiður receive rave reviews in Herning
A packed house – and still more wanted in