News • 6. September 2026
Fyrirtækjavinir Óperudaga
News •
Fyrirtækjavinir Óperudaga
Við viljum vingast við samfélagslega þenkjandi fyrirtæki
Við viljum vingast við samfélagslega þenkjandi fyrirtæki
Færum sönginn út í samfélagið – saman
Eitt af okkar hjartans málum á Óperudögum er að færa sönglistina út fyrir hefðbundin tónleikarými og skapa óvæntar og töfrandi upplifanir fyrir fólk á öllum aldri.
Við heimsækjum grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla og kynnum yngri kynslóðir fyrir sönglistinni á lifandi og skemmtilegan hátt – til dæmis með óperugöngum um nærumhverfið þar sem tónlistin sprettur fram á óvæntum stöðum eða með skemmtilegum óperusýningum.
Ekki síður mikilvægar eru heimsóknir okkar á hjúkrunarheimili og lokaðir söngviðburðir fyrir viðkvæma hópa og fólk sem á erfiðara með að sækja menningarviðburði. Við viljum að sönglistin geti komið til fólksins – ekki aðeins að fólkið þurfi að koma til hennar.

Getum við gert þetta saman?
Með því að gerast fyrirtækjavinur eða bakhjarl Óperudaga hjálpar fyrirtækið þitt okkur að færa sönginn lengra út í samfélagið, skapa ný dýrmæt tækifæri fyrir listafólk og gera fleiri óvenjulegar söngupplifanir mögulegar.
Á móti viljum við skapa eitthvað sérstakt fyrir ykkur.
Kannski langar ykkur að gleðja starfsfólkið með óvæntri söngupplifun, bjóða góðum viðskiptavinum á vandaðan viðburð eða skapa eftirminnilega stund sem er sérsniðin að fyrirtækinu.
Við elskum óvenjulegar hugmyndir og sníðum samstarfið að hverju fyrirtæki.
Syngjandi glatt starfsfólk
Komum starfsfólkinu á óvart!
Við getum mætt á vinnustaðinn með óvænta söngskemmtun, skapað sérstakan viðburð fyrir starfsmannahópinn eða tekið á móti ykkur á einum af viðburðum Óperudaga.
Hvað hentar ykkur? Stórfenglegt hátíðargala? Söngveisla á vinnustaðnum? Sérsniðin söngdagskrá í heimahúsi? Eða eitthvað sem engu okkar hefur dottið í hug enn? Á vormánuðum bjóðum við líka upp á gómsæta Súkkulaðikökuóperu sem hentar frábærlega fyrir árshátíðir.
Spjöllum saman og finnum upplifun sem hittir í mark.
Syngjandi glaðir viðskiptavinir
Viltu koma dýrmætum viðskiptavinum eða samstarfsaðilum skemmtilega á óvart?
Bjóðið þeim á einn af viðburðum Óperudaga, gefið þeim miða að gjöf eða leyfið okkur að sérhanna einkaviðburð fyrir ykkur.
Söngupplifun getur verið falleg og óvenjuleg leið til að segja takk, fagna áfanga eða einfaldlega bjóða upp á eitthvað allt öðruvísi en venjulega.

Söngurinn áfram
Kannski viljið þið ekkert í staðinn – en viljið hjálpa okkur að láta sönginn berast þangað sem hans er þörf.
Fyrirtæki geta stutt ákveðin samfélagsverkefni Óperudaga: heimsókn á hjúkrunarheimili, viðburð fyrir viðkvæman hóp, viðburði fyrir skólabörn eða annað verkefni sem færir lifandi tónlist til fólks.
Þannig verður stuðningurinn að raunverulegri söngupplifun úti í samfélaginu - og stuðlar að aðgengi að listinni fyrir sem flesta.
Fyrirtækjavinur Óperudaga
Fyrirtækjavinir eru mikilvægur hluti af samfélagi Óperudaga og hjálpa okkur að láta sönginn hljóma víðar.
Fyrirtækjavinir fá styrktarlínu á heimasíðu Óperudaga þar sem fyrirtækið er nefnt sem fyrirtækjavinur hátíðarinnar, auk fríðinda sem mótuð eru eftir umfangi samstarfsins.
Það getur til dæmis verið:
- sérsniðin söngupplifun fyrir starfsfólk eða viðskiptavini
- miðar á valda viðburði Óperudaga
- boð á sérstaka viðburði hátíðarinnar
- önnur fríðindi sem við finnum í sameiningu
Bakhjarl Óperudaga
Viljið þið taka stærri þátt?
Bakhjarlar Óperudaga eru meðal lykilsamstarfsaðila hátíðarinnar og gera okkur kleift að hugsa stærra, skapa ný verkefni, styðja listafólk og færa sönglistina til enn fleiri.
Bakhjarlar fá aukinn sýnileika í tengslum við hátíðina, meðal annars:
- lógó og áberandi kynningu á heimasíðu Óperudaga
- aukið pláss og sýnileika á samfélagsmiðlum hátíðarinnar
- kynningu sem bakhjarl Óperudaga í völdu kynningarefni
- möguleika á sérsniðnu efni og samstarfskynningum
- boðsmiða á valda viðburði
- möguleika á sérhannaðri söngupplifun fyrir starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila
Við vinnum náið með hverjum bakhjarli og mótum samstarfið þannig að það hafi raunverulegt gildi fyrir báða aðila.
Eða búum til ykkar eigin pakka
Engin tvö fyrirtæki eru eins – og samstarfið þarf ekki heldur að vera það.
Segið okkur hvað ykkur langar að gera, fyrir hvern og hvers konar stemningu þið eruð að leita að. Við finnum söngvara, tónlist, stað og útfærslu og búum til upplifun í kringum ykkar tilefni.
Hvort sem þið viljið verða fyrirtækjavinir, bakhjarlar, gleðja starfsfólkið eða styðja ákveðið samfélagsverkefni viljum við gjarnan heyra frá ykkur.
Hafið samband
Langar ykkur að heyra meira eða fá hugmynd að samstarfi sem hentar ykkar fyrirtæki?
Hafið endilega samband við okkur og við finnum út hvað við getum skapað saman.