REYKJAVÍK OPERA DAYS
Kastali Bláskeggs
Harpa – Norðurljós | fri, 30 Oct at 18:00
Harpa – Norðurljós | sun, 1 Nov

Kastali Bláskeggs

Buy Tickets
Type Staged Operas
Language Hungarian
Duration 1 hr
Price 1,900 - 6,500 ISK

Hvar er sviðið, góðir áhorfendur? Er það fyrir utan okkur eða innra með okkur?

Í inngangi eða prólóg Kastala Bláskeggs erum við leidd inn í eitt magnaðasta sálfræðiverk óperusögunnar. Frá upphafi verksins er óljóst hvort kastalinn sem við göngum inn í sé raunverulegur staður eða okkar eigið innra landslag – rými minninga, þrár, ótta, myrkurs, ljóss og leyndarmála.

Judith gengur inn í myrkan kastala Bláskeggs og krefst þess að dyr hans verði opnaðar, einar af annarri. Með hverri hurð færist hún nær því sem leynist undir yfirborðinu. Kastalinn verður að rafmögnuðu og hlöðnu rými þar sem fortíð, þrá, ótti og vald hafa safnast upp. Spennan vex, hleðslan vex, dyrnar opnast ein af annarri og það sem hefur verið bælt niður brýst smám saman fram.

Hvað geymum við innra með okkur? Hversu mikla hleðslu getur manneskja borið áður en eitthvað brestur? Hversu vel getum við raunverulega þekkt aðra manneskju? Eigum við rétt á öllum leyndarmálum þeirra sem við elskum – og hvað gerist þegar löngunin til að vera náinn annarri manneskju rekst á þörfina að eiga eitthvað sem aðeins tilheyrir okkur sjálfum?

Meira en hundrað árum eftir að Bartók samdi óperuna eiga þessar spurningar enn brýnt erindi við okkur öll. Tónlistin magnar togstreituna svo úr verður rafmögnuð upplifun. Hljómsveitin er sem undirmeðvitund persónanna: hún kraumar undir yfirborðinu, þrýstir á, springur út og hverfur aftur inn í myrkrið.

Kastali Bláskeggs verður fluttur í hálfsviðsettri uppfærslu og í áhrifamikilli útsetningu Stephen Higgins fyrir 7 manna kammersveit. Higgins þéttir hinn gríðarstóra hljóðheim Bartóks án þess að missa upprunalega litinn og sálrænu spennuna sem einkennir verkið. Útsetningin hefur þegar verið notuð og flutt víða um heim, meðal annars í London, Edinborg, Toronto og Atlanta, Finnlandi og Kína.

Leikstjórinn Kenza Koutchoukali leikstýrði Kastala Bláskeggs fyrir Opera Zuid í Hollandi árið 2024 og uppfærsla Óperudaga sækir innblástur í þá uppfærslu, með góðfúslegu leyfi.

Í Kastala Bláskeggs má búast við spennuþrungnum flutningi þar sem raddir, hljóðfæri og rými mætast á rafmagnaðan hátt. Áhorfendur eru leiddir inn fyrir dyr kastalans – um leið og spurningin sem verkið leggur fyrir okkur strax í upphafi vaknar - hvar er svið lífsins?