Artists of Óperudagar
Þórhildur Magnúsdóttir
Violist
Þórhildur Magnúsdóttir víóluleikari er búsett í Kaupmannahöfn. Hún hefur sérstakan áhuga á nýrri tilraunatónlist og frjálsum spuna og sækist eftir þverfaglegu samstarfi við listafólk úr ólíkum greinum. Hún er virk á sviði samtímatónlistar og hefur meðal annars starfað með K!ART, Who Killed Bambi og Ear Transplant.
Meðal verkefna Þórhildar eru óhefðbundna strengjatríóð Tríó Sól og hið nýstofnaða Spönn collective. Frá árinu 2025 hefur hún einnig tekið þátt í Feluleik, tónleikaröð þar sem tónleikar eru haldnir á óhefðbundnum og yfirgefnum stöðum í Reykjavík. Þórhildur hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikur jafnframt reglulega með hljómsveitinni.
Þórhildur stundaði nám við Konunglega danska tónlistarháskólann hjá Asbjørn Nørgaard, Tim Frederiksen og Lars Anders Tomter og við KASK & Conservatorium í Gent í Belgíu hjá Diederik Suys.
Links & Social Media