Hátíðargala: NOC + ELJA
Óperudagar í samstarfi við Herning Opera Festival bjóða til stórglæsilegra tónleika í flutningi Nordic Opera Choir og kammersveitarinnar Elju undir stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. Á efnisskránni er fjölbreytt dagskrá þar sem nokkur af þekktustu kóratriðum óperusögunnar munu hljóma, ásamt einsöngsverkum og sjaldgæfari óperuperlum.
Á tónleikunum má meðal annars heyra Kór sígaunanna (Il Trovatore) og Va, pensiero (Nabucco) eftir Verdi, þekktar aríur á borð við Habanera úr Carmen og hinn töfrandi Humming-kór úr Madömu Butterfly. Á dagskránni eru einnig dásamleg verk eftir m.a. Alexander Borodin, Kaiju Saariaho og Helenu Munktell.
Óperudagar fagna 10 ára afmæli í dag og er hátíðargalað liður í að fagna þeim merka áfanga!
Nordic Opera Choir er norrænn óperukór skipaður 30 ungum atvinnu- og söngnemum á aldrinum 18–35 ára frá öllum Norðurlöndunum. Kórinn var stofnaður að frumkvæði Den Jyske Sangskole í Herning árið 2023 með það að markmiði að efla unga starfsvettvang klassíska söngvara og skapa öflugt faglegt tengslanet þvert á Norðurlöndin.
Á hverju ári koma söngvararnir saman til æfinga og tónleikahalds undir leiðsögn norrænna stjórnenda og leiðbeinenda. Kórinn starfar með hljómsveitum og tónlistarhátíðum á Norðurlönduom g veitir þátttakendum tækifæri til að þróast listrænt og faglega í lifandi og faglegu norrænu samstarfi.
Verkefnið er að stærstum hluta fjármagnað af A.P. Möller-sjóðnum í Danmörku. Íslenskir styrktaraðilar Óperudaga sem styðja við þetta verkefni eru Tónlistarsjóður, Reykjavíkurborg, Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið, Styrktarsjóður Rutar Hermanns, Ýlir tónlistarsjóður og Kaffi Ó-le.
Gallery
Photos
Unknown-3