REYKJAVÍK OPERA DAYS
Birna Hallgrímsdóttir

Artists of Óperudagar

Birna Hallgrímsdóttir

Pianist

Birna Hallgrímsdóttir er fædd árið 1982, hún lauk Bakkalár gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og Meistaraprófi frá Royal College of Music í London árið 2009 auk þess að hafa stundað nám við tónlistarháskóla í Kuopio í Finnlandi og Stavanger í Noregi. Helstu kennarar Birnu voru Peter Mate, Kirsti Huttunen, Hakon Austbo, Ian Jones, Gordon Fergus-Thompson og Lilly Reiburn.

Birna er virk í íslensku tónlistarlífi og hefur komið fram á fjölda tónleika undanfarin ár. Hún lék debut tónleika sína í Salnum í Kópavogi í júní 2009 og Grieg píanókonsertinn með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins í nóvember 2010.  Hún hefur verið virkur þátttkandi í tónleikum sem haldnir eru í Hörpu á vegum Classical Concert Company Reykjavík frá árinu 2010. Á árinu 2014 fékk Birna styrk frá Félagi íslenskra tónlistarflytjenda til tónleikahalds á Landsbyggðinni og lék einleiks tónleika í Hömrum á Ísafirði, Hverargerðiskirkju og í Laugarborg í Eyjarfirði. Sama ár lék hún einleikstónleika í tónleikaröðinni Klassík í Vatnsmýrinni. Þann 1. apríl sl. kom Birna fram sem einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem hún lét Jeux d´eau eftir Ravel.

Birna er verðlaunahafi í Epta píanókeppninni á Íslandi og var valinn Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2011. Á námsárunum hlaut hún Menningarstyrk Valitors, Styrk frá minningarsjóði Karls Sighvatssonar og tvívegis hlotið styrk um minningu Birgi Einarson apótekara.

Archive

Previous Festival Appearances